Hjólað í vinnuna fer fram dagana 8. – 28. maí 2024.

Frá árinu 2003 hefur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands staðið myndarlega að því að efla hreyfingu og starfsanda á vinnustöðum með heilsu- og hvatningarverkefninu „Hjólað í vinnuna“.

Megin markmið verkefnisins er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Þátttakendur eru hvattir til þess að hjóla, ganga, hlaupa eða nýta almenningssamgöngur til og frá vinnu í þrjár vikur í maí ár hvert.

Starfsmenn vinnustaða hér á landi hafa tekið vel við sér því þátttakan hefur margfaldast síðan að verkefnið fór af stað.

Hjólað í vinnuna fer fram dagana 8. – 28. maí 2024.

Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Hjólað í vinnuna https://hjoladivinnuna.is/
Facebook https://www.facebook.com/hjoladivinnuna/
Instagram https://www.instagram.com/hjoladivinnuna/