Kvenmaður óskast í 55% starf í Íþróttamiðstöðvar Fjallabyggðar

Kvenmaður óskast í 55% starf í Íþróttamiðstöðvar Fjallabyggðar.

Starfstöðvar eru á Siglufirði og Ólafsfirði, en aðalega er um að ræða vaktir á Siglufirði. Sökum eðli starfsins koma kvenmenn einungis til greina.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Eftirlit og gæsla í sundlaug
  • Almenn afgreiðsla og uppgjör í lok vaktar
  • Þjónusta við gesti íþróttamiðstöðvar
  • Almenn þrif og annað sem til fellur.

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri, hafa bílpróf og bíl til umráða.
  • Gerð er krafa að viðkomandi standist hæfnispróf samkvæmt. reglugerðar nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.
  • Góð þjónustulund og lipurð í samskiptum.
  • Hreint sakavottorð.
  • Góð kunnátta í íslensku er skilyrði, enska og þriðja tungumál er kostur.
  • Góð tölvukunnátta er kostur.

Launakjör samkvæmt gildandi samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá með umsagnaraðilum og kynningarbréf.
Vinnutími: Morgun- og kvöldvaktir og þriðja hver helgi. 

Umsækjendur þurfa að gefa leyfi til upplýsingaöflunar úr sakaskrá komi þeir til greina í starfið.

Umsóknarfrestur er til og með: 30. apríl 2024 og verður öllum umsóknum svarað.

Nánari upplýsingar veitir Skarphéðinn Þórsson, forstöðumaður Íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar, netfang: skarphedinn@fjallabyggd.is og farsími 866 9136